Starfsmenn Zebra hafa áhuga á ýmsu

Hér skrifa þeir annað slagið um sín hugðarefni.


Svöl græja frá áttunda áratugnum

Árið 2011 þykir tölvuleikur í háskerpu, þrívídd, surround með hreyfiskynjurum ekki mikið tiltökumál. Fyrir um 40 árum var það ekki tilfellið. Í geymslunni okkar fannst þessi fróma græja sem í minningunni var brúkuð af kappi um 1980. Þá var orðið tölva ekki komið í orðaforða undirritaðs í það minnsta - og kallaðist því sjónvarpsspil. Spilið gladdi margan manninn þá og gerir enn.

20.09 2011

Minningarorð um MiniDisc

Á þessum miklu tæknitímum sem við lifum er bráðnauðsynlegt að líta annað slagið um öxl og kunna að meta þá hluti sem ruddu brautina og yljuðu okkur tækninirðum um hjartarætur. Sumt hefur slegið í gegn, annað var drasl frá upphafi og svo má segja að sumt hafi bara haft sinn líftíma. Þeir sem ekki voru uppi til að upplifa Duran Duran er sennilega til dæmis ekki nógu gamlir til að vita hvað MiniDisc er.

05.08 2011